HomeFréttirReynsla Vals sá um að hirða stigin í Smáranum

Reynsla Vals sá um að hirða stigin í Smáranum

Breiðablik og Valur öttu kappi í Smáranum í kvöld í 11. umferð Dominosdeildar kvenna. Breiðablik eru ennþá að bíða eftir sínum fyrsta heimasigri í úrvalsdeildinni og þrátt fyrir að hafa byrjað gríðarlega vel og komið sér inn í leikinn á loka mínútunum þá sýndi Valur þeim hver munurinn er á að vera með reynslu í úrvalsdeild og að vera nýliðar. Kristrún Sigurjónsdóttir kláraði leikinn fyrir Val á vítalínunni og tryggði Val sinn sjöunda sigur er Valur vann 68-71.
 
Breiðablik byrjuðu ágætlega og komust í 6-2 þökk sé tveimur stolnum boltum í upphafi leiksins. Valur skellti þá í fulla pressu og jöfnuðu fljótt 6-6, Ragna Margrét Brynjarsdóttir með öll stig Vals. Eftir það fóru Breiðablik á flug og komust í 18-6 leiddar áfram af Arielle Wideman. Þá tóku Valsstúlkur við sér og svöruðu með 8-0 kafla til að laga stöðuna í 18-14. Sveifluganginum var ekki lokið og enduðu Breiðablik leikhlutann á 8-2 kafla þar sem að sóknarflétta þeirra virkaði einstaklega glæsilega og skilaði hún Unni Láru Ásgeirsdóttir tveimur galopnum færum undir körfunni. Staðan 26-16 eftir fyrsta leikhluta.
 
Í öðrum leikhluta skellti Valur í lás og yfirspiluðu Breiðablik 11-3 á fyrstu mínútunum og komu sér inn í leikinn 29-27. Eftir það jöfnuðust leikar aðeins út og skiptust liðin á að skora. Guðbjörg Sverrisdóttir jafnaði síðan leikinn fyrir Val 35-35 og stuttu síðar kom Joanna Harden Val yfir í stöðunni 39-41, í fyrsta skiptið síðan í stöðunni 2-0, þegar 30 sekúndur voru í hálfleik. En Harden átti magnaðann leikhluta þar sem hún skoraði 14 stig og tók 4 fráköst.
 
Seinni hálfleikurinn byrjaði á því að liðin skiptust á körfum en síðan kom Valur með 11-0 kafla sem kom þeim í 43-56. Breiðablik spiluðu afleitlega og gáfu Val endalaust af seinni sóknartækifærum þar sem að Valur hirti hvert sóknarfrákastið á eftir öðru, en um miðjan leikhlutann var staðan 16-6 í sóknarfráköstum fyrir Val í leiknum. Breiðablik tókst þó að enda leikhlutann á 5-0 kafla og laga stöðuna í 48-58 fyrir fjórða leikhlutann.
 
Fjórði leikhlutinn einkenndist af miklum barningi í upphafi og var munurinn óbreyttur eftir fimm mínútur í stöðunni 53-63. Þá kom mjög góður kafli hjá Breiðablik þar sem þær yfirspiluðu Val 13-4 og var Berglind Karen Ingvarsdóttir allt í öllu þar en hún skoraði 4 stig, stal tveimur boltum og tók varnarfrákast. Blikar komnar yfir 66-65 með rétt rúmar 2 mínútur til leiksloka. En þá var það reynslan sem reið baggamun og kom Harden Val aftur yfir og síðan var það eins áður hefur verið sagt Kristún Sigurjónsdóttir sem kláraði leikinn fyrir Val á vítalínunni.
 
 
Mynd – Jón Björn/ Guðbjörg Sverrisdóttir var ágæt í kvöld þrátt fyrir lélegan skotdag
Fréttir
- Auglýsing -