,,Í svona leikjum er hátt spennustig og mörg mistök gerð. Við höfum verið hérna oftar en Njarðvíkingar og nýtum okkur þá reynslu,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir leikmaður Keflavíkur eftir sigur á Njarðvík í kvöld 64-67 í Ljónagryfjunni. Keflavík leiðir einvígið 2-0 og getur orðið Íslandsmeistari á föstudagskvöld.
,,Maður þarf að vera á tánum þegar maður er að leiða gegn svona liði eins og Njarðvík og við höfum ekkert unnið ennþá. Þið sjáið bara eins og hjá karlaliði Keflavíkur, Njarðvík getur alltaf komið til baka svo þetta er langt frá því að vera búið,“ sagði Pálína en hvað þarf Keflavík að gera til að Njarðvíkingar öðlist ekki viðlíka von og karlalið Keflavíkur hefur gert í rimmu sinni gegn KR?
,,Ef við spilum okkar leik þá erum við alveg með þetta, þurfum kannski að spýta aðeins í vörnina finnst mér,“ sagði Pálína en Keflavík pressaði stíft í kvöld á gestgjafa sína, hefðu þær komist upp með það gegn reynslumeiri liðum á borð við KR og Hamar?
,,Já, pressan hefur verið góð hjá okkur og þegar við erum með læti þá gengur hún yfirleitt upp,“ sagði Pálína og kvaðst hlakka til leiks þrjú á föstudagskvöld en hún gerði 4 stig í kvöld fyrir Keflavík og tók 8 fráköst ásamt því að hafa sig mikið í frammi í varnarleik Keflavíkurliðsins.





