Argentínumaðurinn öflugi Manu Ginobili verður að öllum líkindum ekki með San Antonio Spurs í fyrsta leik liðsins gegn Memphis Grizzlies í úrslitakeppni NBA deildarinnar. Ginobili sem gert hefur 17,4 stig að meðaltali í leik þetta tímabilið með Spurs tognaði á olnboga í síðasta leik deildarkeppninnar.
Spurs luku keppni á toppi vesturstrandarinnar eftir deildarkeppnina og mæta því Grizzlies sem höfnuðu í 8. sæti en fyrsti leikur liðanna er næstkomandi sunnudag. Loku er þó ekki fyrir það skotið að Ginobili verði með eins og sakir standa er það allsendis óvíst.




