HomeFréttirÖqvist nýr þjálfari hjá A-landsliði karla í körfuknattleik

Öqvist nýr þjálfari hjá A-landsliði karla í körfuknattleik

 
KKÍ hefur ráðið þjálfara á A-landslið karla til ársins 2013. Næsti þjálfari A-landsliðs karla verður Peter Öqvist sem í dag er þjálfari Sundsvall í Svíþjóð. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu sem sambandið var að senda frá sér.
Fréttatilkynning KKÍ:
 
Peter er 35 ára og hefur bæði menntun og mikla reynslu sem þjálfari en hann hóf mjög ungur að þjálfa. Peter var í þjálfarateymi yngri landsliða og U-20 ára landsliðs Svía á árunum 2002 – 2006.
 
Peter hefur verið aðalþjálfari Sundsvall síðustu 6 ár og þar á undan var hann aðstoðarþjálfari liðsins í tvö tímabil. Á þessum árum hefur Sundsvall verið í fremstu röð og m.a. unnið nokkra deildarmeistaratitla, meistaratitilinn 2009 og í nokkur skipti leikið til úrslita. Þegar þetta er ritað er liðið í harðri baráttu um sænska meistaratitilinn.
 
Peter þekkir ágætlega til körfuboltans á Íslandi en með Sundsvall leika þeir Jakob Sigurðarson og Hlynur Bæringsson en auk þeirra leika Logi Gunnarsson og Helgi Magnússon í Svíþjóð. Einnig hefur Peter fylgst með yngri sem eldri landsliðum Íslands síðustu árin.
 
Aðstoðarmenn Peters:
 
Peter til aðstoðar verða þeir Helgi Jónas Guðfinsson fyrrverandi landsliðsmaður og atvinnumaður og núverandi þjálfari Grindavíkur og Pétur Sigurðsson fyrrverandi leikmaður í efstu deild og nýráðinn þjálfari KFÍ.
 
Helgi Jónas kemur með víðtæka þekkingu sem fyrrverandi landsliðsmaður, atvinnumaður og þjálfari úr efstu deild. Einnig mun þekking og reynsla Helga á styrktar og hraðaþjálfun nýtast leikmönnum og liðinu.
 
Pétur Sigðurðsson sem útskrifast sem íþróttafræðingur á næstunni hefur þjálfað yngri flokka og meistaraflokka og er nýráðinn þjálfari KFÍ á Ísafirði. Pétur mun m.a. sjá um úrvinnslu myndbanda af leikjum og greiningu á andstæðingum íslenska liðsins.
 
Norðurlandamót í Sundsvall í sumar:
 
Norðurlandamót A-landsliða fer fram í Sundsvall heimavelli Peter, Jakobs og Hlyns dagana 23. – 28. júlí
 
 
Evrópukeppni 2012 – 2013:
 
Liðið mun svo einnig taka þátt í nýju fyrirkomulagi á Evrópukeppninni sem hefst 2012 en þá verður ekki leikið i A og B deild eins og undanfarin ár. Þau lið sem ekki fara sjálfkrafa í lokakeppnina í Slóveníu 2013 verður raðað í styrkleikaröð í riðla sem er svipað og gert er í knattspyrnunni. Það eru því vonir til þess að sterkar þjóðir komi til landsins á næstu árum. Það verður dregið í riðla í kringum næstu áramót.
 
Mynd/ Peter Öqvist er nýráðinn landsliðsþjálfari A-landsliðs karla.
Fréttir
- Auglýsing -