Tveir leikir voru á dagskrá í NBA í gærkvöldi og nótt. Oklahoma mætti Memphis í oddaleik um sæti í úrslitum vesturstrandarinnar og Chicago og Miami spiluðu fyrsta leik sinn í úrslitum austurstrandarinnar.
Oklahoma-Memphis 105-90: Oklahomamenn voru frábærir í seinni hálfleik og unnu sanngjarnan sigur. Memphis menn komstu aldrei almennilega í takt á meðan heimamenn voru með allt á fullu. Kevin Durant með var með 39 stig. Jason Harden setti 17 og Russell Westbrook var með þrennu 14 stig, 14 stoðsendingar og 10 fráköst. Hjá Memphis var Mike Conley með 18 stig og Zach Randolph 17.
Chicago-Miami 103-82: Chicago átti frábæran seinni hálfleik þar sem þeir stungu gesti sína af. Í hálfleik var jafnt 48-48 en í þeim seinni og sérstaklega fjórða leikhluta stungu heimamenn af og unnu góðan 21 stigs sigur. Stigahæstur hjá Chicago var Derrick Rose með 28 og Luol Deng með 21 stig. Hjá Miami skoraði Chris Bosh 30 stig og Dwayne Wade var með 18.
Mynd: Kevin Durant var frábær í gær með 39 stig.





