Helgi Már Magnússon og félagar í Uppsala unnu í gær lífsnauðsynlegan sigur á Södertalje Kings í 8-liða úrslitum sæsnku úrvalsdeildarinnar. Staðan í einvígi Södertalje og Uppsala er 2-2 og því verður oddaleikur á heimavelli Södertalje annað kvöld.
Uppsala tók á móti Södertalje í gærkvöldi og skellti gestum sínum 79-60. Helgi var þriðji stigahæstur hjá Uppsala með 11 stig, 6 fráköst, eina stoðsendingu og einn stolinn bolta á tæpum 33 mínútum en Helgi var í byrjunarliðinu í gær.
Oddaleikurinn hjá Södertalje og Uppsala fer fram annað kvöld en í kvöld verða þeir Hlynur Elías Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson á ferðinni með Sundsvall Dragons þegar þeir taka á móti Jamtland Basket í oddaleik liðanna. Þá eru Logi Gunnarsson og Solna Vikings komnir í sumarfrí eftir 3-1 ósigur gegn Norrköping Dolphins í 8-liða úrslitum.
Einvígi Södertalje og Uppsala til þessa:
Leikur 1: Södertalje 59-61 Uppsala
Leikur 2: Uppsala 79 – 97 Södertalje
Leikur 3: Söderstalje 76 – 56 Uppsala
Leikur 4: Uppsala 79 – 60 Södertalje
Einvígi Sundsvall og Jamtland til þessa:
Leikur 1: Sundsvall 74 – 62 Jamtland
Leikur 2: Jamtland 86 – 75 Sundsvall
Leikur 3: Sundsvall 91 – 75 Jamtland
Leikur 4: Jamtland 75 – 78 Sundsvall
Ljósmynd/ Magnus Neck: Hlynur í baráttunni gegn Solna Vikings fyrr í vetur. Hann og Jakob munu standa í ströngu í kvöld, sigur eða sumarfrí?





