HomeFréttirOddaleikur á þriðjudag: Njarðvík jafnaði metin gegn Hamri

Oddaleikur á þriðjudag: Njarðvík jafnaði metin gegn Hamri

 
Það var allt annað Njarðvíkurlið sem að mætti í Ljónagryfjuna í kvöld frá því sem að mætti í Blómabæinn á fimmtudaginn sl. Andleysið horfið og vörnin mætt á staðinn. Liðin mættu ákveðin til leiks og sýndu áhorfendum virkilega skemmtilegan körfubolta frá fyrstu mínútu þessa leiks.
Heimastúlkur byrjuðu betur og komust í 6-0 áður en gestirnir rönkuðu við sér, en það var Íris Ásgeirsdóttir sem kom með fínan þrist fyrir gestina, sem að voru hennar einu stig í leiknum.
 
Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi, en heimastúlkur voru þó ávallt skrefi á undan og leiddu í hálfleik 42-33 þar sem að Shayla Fields var komin með 17 stig fyrir Njarðvíkurstelpur.
 
Hamarsstúlkur mættu ákveðnar á völlinn í seinni hálfleik og náðu að minnka muninn í 46-45 en lengra komust þær ekki, þrátt fyrir frábæran leik hjá Jaleesu Butler sem skoraði 16 stig í 3.leikhluta þá dugði það ekki til, en þessi frábæri leikmaður var með 36 stig í dag og tók 12 fráköst.
 
Að öðrum ólöstuðum átti Shayla frábæran leik og fiskaði 9 villur, Julia var mjög grimm undir körfunni hjá fyrrum liðsfélögum sínum.
 
Jaleesa Butler bar höfuð og herðar yfir aðrar Hamarsskonur og einsog fyrr sagði með 36 stig og 12 stoðsendingar, Slavica var í sínu vanalega formi, en lenti í villuvandræðum um miðjan 3.leikhluta og fékk að taka því rólega á bekknum það sem eftir lifði þess leikhluta. Miklu munaði fyrir gestina að Kristrún Sigurjóns var einungis með 1 stig og er það ansi sjaldséð.
 
Byrjunarlið Njarðvíkur; Shayla, Dita, Julia, Ólöf Helga, Ína María
Byrjunarlið Hamars, Jaleesa, Slavica, Fanney, Íris, Kristrún Sigurjóns.
 
Stigaskor Njarðvíkur;
Shayla Fields 30 stig / 7 fráköst
Julia 27 stig / 15 fráköst
Dita 16 stig / 8 stoðsendingar/8 fráköst
Ólöf Helga 6 stig
Aðrar komust ekki á blað
 
Stigaskor Hamars:
Jaleesa 36 stig/ 12 fráköst
Slavica 13 stig / 8 stoðsendingar
Fanney Lind 11 stig
Þórunn 4 stig
Íris 3
Jenný 2
Kristrún 1
 
Ljósmynd/ www.vf.is
 
Umfjöllun/ GÓS
 
Fréttir
- Auglýsing -