HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaNýtt nafn og nýr bakhjarl: Bæjarins Beztu taka yfir 1. deildina og...

Nýtt nafn og nýr bakhjarl: Bæjarins Beztu taka yfir 1. deildina og landsleikina

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) og Bæjarins Beztu Pylsur hafa undirritað nýjan þriggja ára samstarfssamning.

Samningurinn felur í sér að næstefstu deildir landsins í körfubolta munu héðan í frá bera heiti fyrirtækisins og heita formlega Bæjarins Beztu deild karla og Bæjarins Beztu deild kvenna í stað 1. deildar.

Auk nafngiftarinnar mun Bæjarins Beztu sjá um alla veitingasölu á leikjum íslensku landsliðanna sem og öðrum helstu viðburðum sambandsins næstu þrjú árin. Hjá KKÍ ríkir samkvæmt tilkynningu mikil tilhlökkun fyrir samstarfinu en stefnt er að því að efla enn frekar umfjöllun og kynningu á deildunum tveimur á komandi misserum.

Fréttir
- Auglýsing -