HomeNeðri deildir1. deild kvennaÞór Þorlákshöfn burstaði Breiðablik og jafnaði Selfoss á toppnum

Þór Þorlákshöfn burstaði Breiðablik og jafnaði Selfoss á toppnum

Þór Þorlákshöfn sótti öruggan 103–67 stórsigur gegn Breiðabliki í Smáranum í 1. deild kvenna í kvöld.

Gestirnir tóku öll völd eftir jafnan fyrsta leikhluta (23–25) og byggðu forskot sitt jafnt og þétt upp það sem eftir lifði leiks. Með sigrinum komst Þór í 8 stig og jafnaði nágranna sína á Selfossi á toppi deildarinnar.  

Shawnteanna Tillman fór algjörlega á kostum í liði Þórs og daðraði við fjórfalda tvennu með 31 stigi, 8 fráköstum, 8 stoðsendingum og 8 stolnum boltum. Antoaneta Alexe skoraði 17 stig og tók 8 fráköst og Jara Björg Gilbertsdóttir bætti við 15 stigum. Í liði Blika var Þórdís Jóna Kristjánsdóttir stigahæst með 12 stig og Telma Hrönn Loftsdóttir skilaði 11 stigum og 5 fráköstum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -