Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið, en að þessu sinni mæta Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í íslenska körfuboltanum.
Farið er ítarlega yfir stöðu liðanna í Bónusdeild karla eftir síðustu umferð og rýnt í hverjir áttu góða viku og hverjir áttu slæma viku. Þá er komin ný uppfærsla á styrkleikalista þáttarins yfir bestu bandarísku leikmenn deildarinnar, þar sem nýtt nafn hefur tekið yfir toppsætið. Umræðan um erlendu leikmennina stoppar þó ekki þar, því félagarnir taka einnig fyrir þá leikmenn sem þurfa nauðsynlega að fara að stíga upp áður en þeir missa vinnuna.
Að lokum er gerð góð yfirferð yfir 1. deild karla þar sem farið er yfir hvaða lið eiga raunhæfan séns á að fara beint upp í Bónusdeildina og hverjir þurfa að treysta á umspilið í úrslitakeppninni.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.





