spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaNjarðvíkingar bestir í fyrstu umferð Subway deildar karla - Leikur KR og...

Njarðvíkingar bestir í fyrstu umferð Subway deildar karla – Leikur KR og Breiðabliks hraðastur

Körfuboltatölfræðingurinn Hörður Tulinius hefur reiknað út stöðu liða Subway deildar karla eftir fyrstu umferðina útfrá því sem í daglegu tali þekkist sem tölfræði fyrir lengra komna (e. advanced statistics) og þekkist víða í hinum stóra heimi körfubolta.

Hörður Tulinius / twitter.com/HordurTulinius

Samkvæmt greiningunni er Njarðvík besta lið deildarinnar með 32,1 í Net Rating. Næstir á eftir þeim kemur Stjarnan með 13,1, og Tindastóll í því þriðja með 17,0. Versta lið deildarinnar eru Þór Þ með -32,1 í Net Rating, en þar undan eru Valur með -17,0 og ÍR þriðja versta liðið með -13,1.

Á sóknarhelmingi vallarins eru Njarðvík bestir, með 3,2 í einkunn, Stjarnan fyrir aftan þá með 3,7 og KR með þriðju bestu sóknina, 4,6. Versta sókn deildarinnar er hjá Þór Akureyri, en einkunn þeirra er 10,4 og næst versta sóknin er í Grindavík, 9,6.

Á varnarhelmingi vallarins bera Grindvíkingar svo höfuð og herðar yfir önnur lið, með 2,7 í einkunn, en versta vörnin hingað til hefur verið hjá Þór Þ, 9,8.

Þá er þarna einnig að finna útreikninga fyrir hraða liðanna. Samkvæmt útreikningum var hraðast leikið í leik KR og Breiðabliks 88,4, en hægasti körfuboltinn var í leik Keflavíkur og Vestra 73,9.

Hörður Tulinius / twitter.com/HordurTulinius

Fyrir frekari útskýringar á flokkum fjórþáttagreiningarinnar er hægt að lesa hér

Hérna er taflan á Grid.is

Fréttir
- Auglýsing -