HomeFréttirNjarðvík sló út Keflavík B

Njarðvík sló út Keflavík B

 Það var fátt um dýrðir þegar Njarðvík lagði B lið Keflavíkur í 32 liða úrslitum Poweradebikarkeppni karla í kvöld á heimavelli Keflvíkinga í Sláturhúsinu með 120 gegn 38 stigum. 
Keflvíkingar, sem spiluðu leikinn á aðeins sjö mönnum, héldu að einhverju leyti í við gestina frá Njarðvík í fyrsta leikhlutanum, sem endaði 15-22. Fljótlega í öðrum fór Njarðvík þó á flug og spilaði restina af leiknum án þess að hafa nokkrar áhyggjur af því hver staðan var.

 

Njarðvíkingar eru því komnir áfram í 16 liða úrslitin ásamt Haukum B, Val, Snæfell, Tindastól, KR, Hamar, Grindavík, ÍA, Leikni, ÍR og Skallagrím. 

 

Hjá Keflavík var Elentínus Margeirsson atkvæðamestur með 14 stig.

 

Hjá Njarðvík var Maciej Baginski með 23 stig og Ágúst Orrason með 20 stig.

 

 

Punktar:

  • Keflavík B hafði aðeins 7 leikmenn til taks í leiknum.
  • Allir leikmenn beggja liða komust á blað h.v. stigaskorun.
  • Njarðvík skoruðu 20 þriggja stiga körfur í leiknum.
  • Njarðvíkingar léku án Ólafs Helga Jónssonar.

 

 

 

Umfjöllun og myndir/ Davíð Eldur

 

 

 Friðrik Ingi Þjálfari Njarðvíkur:


 
 
 
Garðar Örn leikmaður Keflavíkur:
 
Fréttir
- Auglýsing -