Leikur tvö í einvígi Njarðvíks og Hauka fór fram í kvöld í Schenkarhöllinni og eigðu Haukar von um að jafna einvígið 1-1 eftir gríðarlega jafnan fyrsta leik inn í Njarðvík. Þrátt fyrir kröftuga byrjun hjá Haukum þá voru Njarðvíkingar of sterkir með svaðalegan leik frá Tracy Smith Jr. í fararbroddi.
Haukar byrjuðu leikinn af miklum krafti og sótti stíft á Njarðvík. Það skilaði þeim í 11-4 á upphafs mínútum leiksins. Njarðvík komu aðeins tilbaka áður en Haukar áttu magnaðar 30 sekúndur þar sem Emil Barja setti tvo þrista og Haukur Óskarsson eitt víti. 7-0 kafli og Haukar komnir 10 stigum yfir 18-8. Þeir voru ekki hættir og jók Terrence Watson muninn í 12 stig. Þá tók við kafli hjá Njarðvík þar sem þeir sóttu gríðarlega grimmt inn í teiginn og uppskáru vítaskot eftir vítaskot. Njarðvík yfirspiluðu Hauka 18-3 til að ljúka fyrsta leikhluta og staðan 25-24. Gríðarlega mikið var flautað og Haukarnir með 8 villur í fyrsta leikhlutanum og þar af var Emil með þrjár.
Emil þurfti því að verma tréverkið allan annan leikhlutann og var það dýr biti fyrir Hauka þar sem hann var með 10 stig í leikhlutanum. Leikhluti var annars stál í stál og varnarleikurinn í aðalhlutverki hjá báðum liðum. Haukar náðu mest 7 stiga forystu en Logi Gunnarsson sá til þess að Njarðvík leiddi með tveimur stigum í hálfleik 46-48.
Emil var ekkert að láta hvíldina hafa áhrif á skotið sitt og smellti hann niður þrist í sínu fyrsta skoti. Hann bætti við körfu stuttu síðar og kom Haukum í 55-50. Þá fóru Njarðvíkingar algjörlega á flug og settu á svið svakalega skotsýningu á 15-0 áhlaupi þar sem Ágúst Orrason setti tvo þrista í röð og Logi bætti við einum til viðbótar strax þar á eftir, 55-65 fyrir Njarðvík. Haukar fóru síðan illa af ráði sínu þegar Emil fékk sína fjórðu villu og Svavar Páll Pálsson fékk dæmda tæknivillu á bekkinn sökum mótmæla. Haukar löguðu stöðuna í 62-68 áður en Njarðvík klára leikhlutann með 5 stigum og leiddu því 62-73 fyrir fjórða.
Haukar byrjuðu sterkt og áttu 6-0 kafla þar sem ekkert gekk upp hjá Njarðvíkingum og fengu þeir meðal annars dæmdar á sig 8 sekúndur. Leikurinn kominn niður í 5 stig en þá tók Ólafur Helgi Jónsson til sinna mála og skoraði hann 5 stig á stuttum tíma sem kom Njarðvík 10 stigum yfir 70-80. Haukar gáfust ekki upp og héldu áfram að sækja en Njarðvík gekk allt í haginn. Í tvígang skoraði Maciej Stanislav Bagisnki rétt í þann mund er skotklukkan var að renna út, fyrra skotið magnaður þristur. Brotið var á Emil Barja í þriggja stiga skoti þegar rétt rúm mínúta var tl leiksloka og setti hann öll vítin niður. Haukar náðu síðan boltanum og minnkaði Kári Jónsson muninn í 82-85 með undir mínútu til leiks. Logi Gunnarsson gerði þó út um vonir Hauka með því að setja niður algjörlega bannvænan þrist úr horninu og koma Njarðvík í 82-88. Of lítið var eftir að leiknum til að Haukar ættu möguleika en Emil skoraði þó 2 stig áður en flautan gall. 84-88 sigur hjá Njarðvík sem leiða 2-0.
Mynd Axel Finnur – Elvar Már Friðriksson leiddi sína menn til sigurs í kvöld




