spot_img
HomeFréttirNBA 2k20 er kominn út

NBA 2k20 er kominn út

Eftirsóttasti körfuboltatölvuleikur nútímans NBA 2K kom út í vikunni í nýrri árlegu útgáfunni. NBA 2K20 hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu en grafík leiksins og spilun hefur tekið gríðarlegum framförum síðustu árin.

Framleiðendur leiksins hafa lagt áherslu á að bæta raunveruleikastig leiksins. Grafík leiksins hefur verið bætt enn meira og munurinn á milli tölvuleiksins og raunveruleikans orðin ansi lítill. 

Söguþráðurinn í MyPlayer möguleika leiksins hefur aftur verið tekinn í gegn og getur leikmaðurinn þinn nú farið nýjar leiðir í leið sinni að NBA deildinni. Þá hefur MyTeam möguleikinn fengið nýja möguleika.

Það er ljóst að mikil spenna er fyrir þessum vinsæla leik. Leikurinn kom út síðasta mánudag og er fáanlegur í öllum ELKO búðum landsins.

Fréttir
- Auglýsing -