Hörður Axel Vilhjálmsson og liðsfélagar í MBC unnu nauman 94-98 útisigur á webmoebel Baskets síðastliðið föstudagskvöld í þýsku Pro A deildinni. Með sigrinum er MBC eitt á toppi deildarinnar með sjö sigra og einn tapleik.
Hörður Axel lék í rúmar 26 mínútur í leiknum en komst ekki á blað í stigaskorinu. Hann var þó með fjórar stoðsendingar og 3 fráköst.




