HomeFréttirMyndband: Þvílíkur Kári Jónsson takk fyrir túkall!

Myndband: Þvílíkur Kári Jónsson takk fyrir túkall!

 
Um síðustu helgi urðu Haukar Íslandsmeistarar í 9. flokki karla eftir ævintýralegan sigur á Stjörnunni. Kári Jónsson var hetja Haukamanna í leiknum en hann setti niður magnaðan þrist á milli miðju og þriggja stiga línunnar.
Haukar áttu innkast þegar fjórar sekúndur voru til leiksloka og voru þeir tveimur stigum undir þegar Kári lét ,,Maríubænina“ vaða í loftið. Fjölnir TV tók upp alla leiki helgarinnar og nú eru síðustu andartök þessa magnaða leiks komin inn á Youtube, myndbandið af sigurkörfu Kára má sjá hér.
 
Í lýsingunni fer Örvar Þór Kristjánsson þjálfari Fjölnis í Iceland Express deild karla á kostum, hér er brot úr lýsingunni: ,,Þvílíkur Kári Jónsson, takk fyrir túkall!“
 
Mynd/ [email protected] Kári var einnig útnefndur besti maður úrslitaleiksins, ekki amalegt dagsverk að gera sigurkörfuna, verða Íslandsmeistari og besti maður leiksins.
Fréttir
- Auglýsing -