Blikar buðu áhorfendum á tvíhöfða í Smáranum í gærkvöldi þegar karla- og kvennalið félagsins fengu til sín góða gesti. Blikakonur máttu sætta sig við ósigur gegn Grindavík en karlarnir höfðu betur gegn FSu. Það var glatt á hjalla við báða leikina enda gestum boðið upp á grillaða borgara og gos gegn vægu gjaldi.
Stigaskor karlaleiksins:
Breiðablik-FSu 97-91 (18-21, 27-17, 28-23, 24-30)
Breiðablik: Þorsteinn Gunnlaugsson 19/16 fráköst, Hraunar Karl Guðmundsson 16, Snorri Hrafnkelsson 14, Arnar Pétursson 12/9 stoðsendingar, Ægir Hreinn Bjarnason 12/5 stoðsendingar, Atli Örn Gunnarsson 11/8 fráköst, Sigmar Logi Björnsson 6, Hjalti Már Ólafsson 4, Þorgrímur Guðni Björnsson 3/4 fráköst, Ívar Örn Hákonarson 0, Arnar Bogi Jónsson 0, Einar Þórmundsson 0.
FSu: Kjartan Atli Kjartansson 29/5 stolnir, Orri Jónsson 17/4 fráköst/7 stoðsendingar, Bjarni Bjarnason 16/4 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 13/4 fráköst, Þorkell Bjarnason 6/4 fráköst, Svavar Stefánsson 5/6 fráköst, Eggert Sigurþór Guðlaugsson 3, Birkir Víðisson 2, Gísli Gautason 0, Björn Kristinn Pálmarsson 0, Maciej Klimaszewski 0, Daníel Kolbeinsson 0.
Lokatölur í kvennaleiknum voru 49-68 Grindavík í vil.




