HomeFréttirMun spila með Hamri næsta vetur eins og staðan er í dag

Mun spila með Hamri næsta vetur eins og staðan er í dag

 
Bakvörðurinn Lárus Jónsson tók nýverið við karla- og kvennaliði Hamars af Ágústi Björgvinssyni. Eins og staðan er í dag mun Lárus leika með Hamri í 1. deild karla á næstu leiktíð en sagði í snörpu samtali við Karfan.is að ef leikmaður kæmi inn í leikstjórnendastöðuna þá myndi hann ekki fara í búning. Lárus þreytir nú frumraun sína sem meistaraflokksþjálfari.
Þá er frumraunin hafin sem þjálfari í meistaraflokki, hverjar verða svona þínar áherslur hjá klúbbnum?
Jú mikið rétt, þetta er frumraun mín sem þjálfari meistaraflokks og ég hlakka mikið til að hella mér í þjálfun. Ég mun leggja áherslu á að þeir sem spila fyrir Hamar taki liðið fram yfir eigin hagsmuni. Helstu markmið varðandi árangur á komandi tímabili helst svo í hendur við leikmannahóp.
 
Leikmannamál beggja liða, sérðu fyrir miklar breytingar á hópunum?
Það verða töluverðar breytingar, bæði hjá karla og kvennaliði. Darri og Ellert spila ekki með okkur á næsta tímabili og verður það mikil blóðtaka fyrir liðið því þeir stóðu sig mjög vel fyrir Hamar á síðasta tímabili. Svo hafa þrjár mjög öflugar stelpur fylgt Gústa yfir í Val og það verður spennandi að sjá hvaða stelpur ætla að stíga upp og fylla þeirra skarð. Annars reikna ég með að halda öðrum leikmönnum en aðal spurningamerkið er Svavar Páll og hvort við náum ekki að plata hann til að ná 500 leikjum fyrir Hamar en hann spilaði 300. leikinn fyrir Hamar í vetur.
 
Verður þú spilandi þjálfari hjá körlunum?
Eins og staðan er í dag þá mun ég spila næsta vetur en ef það bætist við leikmaður í leikstjórnandastöðuna þá mun ég ekki spila
 
Verður einhver með þér til aðstoðar?
Oddur Ben mun líklega aðstoða mig með kvennaliðið en það er óvíst hver mun aðstoða mig með karlaliðið.

Ljósmynd/ Dagur Gunnarsson

 
Fréttir
- Auglýsing -