spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaMeistarar meistaranna í Ljónagryfjunni í kvöld

Meistarar meistaranna í Ljónagryfjunni í kvöld

Njarðvík og Haukar eigast við í Ljónagryfjunni kl. 19:15 í kvöld í meisturum meistaranna, þar sem Haukar urðu bikarmeistarar á síðasta tímabili, en Njarðvík hampaði Íslandsmeistaratitlinum.

Minningarsjóður Ölla fær allann ágóða af miðasölu. Sjóðurinn var stofnaður til minningar um körfuknattleiksmanninn Örlyg Aron Sturluson sem var ekki lengi að stimpla sig inn sem mesta efni í sögu íslensks körfubolta eftir að hann hóf feril sinn með meistaraflokki Njarðvíkur árið 1997, þá einungis 16 ára gamall. Hann varð undir eins lykilmaður í liðinu sem varð Íslandsmeistari árið 1998, en sjóðurinn hóf starfsemi haustið 2013 og hefur það að markmiði að styrkja börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna.

Hér má sjá meira um Minningarsjóð Ölla

Fréttir
- Auglýsing -