Stjarnan hefur samið við belgíska landsliðsmanninn Loïc Schwartz fyrir áframhaldandi baráttu í Bónus deild karla.
Schwartz er 33 ára gamall og 198 sentímetra hár bakvörður sem kemur með mikla reynslu af evrópskum stórsviðum, en hann hefur leikið í sterkum deildum í Belgíu, Frakklandi, Grikklandi og Tyrklandi, auk þess að spila í Meistaradeild Evrópu og með belgíska landsliðinu.
Á glæstum ferli hefur hann meðal annars verið valinn besti leikmaður ársins í heimalandinu, besti leikmaður úrslitaeinvígisins og fjórum sinnum orðið belgískur meistari. Schwartz er þekktur sem örugg skytta og setti til að mynda niður 42,3% þriggja stiga skota sinna með Saint-Quentin í efstu deild Frakklands á síðustu leiktíð.
Garðbæingar binda miklar vonir við reynslu og fjölhæfni kappans og buðu hann velkominn í ÞG Verk höllina í tilkynningu sinni í dag.




