HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaSnýr aftur heim í Fjölni frá KR

Snýr aftur heim í Fjölni frá KR

Djordje Arsic er genginn aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Fjölni eftir tæplega tveggja ára dvöl í herbúðum KR í Vesturbænum.

Djordje mun æfa með meistaraflokki félagsins í 1. deild karla samhliða því að leika með venslaliðinu Vængjum Júpíters og sínum aldursflokki í yngri flokkum félagsins. Fjölnismenn fögnuðu heimkomu leikmannsins á samfélagsmiðlum í dag og buðu hann hjartanlega velkominn aftur í Grafarvoginn.

Fréttir
- Auglýsing -