spot_img
HomeÚti í heimiEuroleagueMartin frábær í sigri á CSKA Moscow í EuroLeague - Tryggði liðinu...

Martin frábær í sigri á CSKA Moscow í EuroLeague – Tryggði liðinu framlengingu

Martin Hermannsson og Valencia unnu í kvöld góðan sigur á CSKA Moscow í EuroLeague eftir tvær framlengingar, 105-103. Valencia er eftir leikinn í 10. sæti deildarinnar með 50% sigurhlutfall, 12 sigra og 12 töp það sem af er tímabili.

Martin var mikilvægur fyrir Valencia í kvöld. Í lokin á fyrri framlengingunni er það hann sem tryggir þeim aðra framlengingu með því að setja niður vítaskot. Á 29 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Martin 17 stigum, 3 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -