Lykilleikmaður 5. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Vals Kiana Johnson.
Á rúmum 37 mínútum spiluðum í miklum seiglusigri Vals á Grindavík í HS Orku Höllinni var Kiana besti leikmaður vallarins. Skilaði 28 stigum, 7 fráköstum, 5 stoðsendingum, 4 stolnum boltum og vörðu skoti. Þá var hún nokkuð skilvirk í leiknum, með yfir 60% skotnýtingu og 34 framlagsstig fyrir frammistöðuna..
- umferð – Danielle Rodriguez / Grindavík
- umferð – Keira Robinson / Haukar
- umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
- umferð – Aliyah Collier / Njarðvík
- umferð – Kiana Johnson / Valur