Lykilleikmaður sjöttu umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Þórs Akureyri Dedrick Deon Basile.
Í sterkum fyrsta sigri Þórs í vetur á liði Tindastóls var Basile besti leikmaður vallarins. Á rúmum 38 mínútum spiluðum skilaði hann 23 stigum, 2 fráköstum, 14 stoðsendingum, 3 stolnum boltum og 2 vörðum skotum. Þá var hann nokkuð skilvirkur í leiknum, en í heildina skilaði hann 35 framlagsstigum.
![](https://www.karfan.is/wp-content/uploads/2021/01/template-13.jpg)
Leikmenn umferða:
- umferð – Larry Thomas
- umferð – Dominykas Milka
- umferð – Logi Gunnarsson
- umferð – Dominykas Milka
- umferð – Antonio Hester
- umferð – Dedrick Deon Basile