Lykilleikmaður 8. umferðar Bónus deildar karla var leikmaður Grindavíkur Daniel Mortensen.
Í nokkuð sterkum sigri Grindavíkur á Keflvíkingum í Blue höllinni var Daniel besti leikmaður vallarins. Á rúmum 36 mínútum spiluðum skilaði hann 32 stigum, 14 fráköstum, 4 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var hann einkar skilvirkur í eliknum, með 72% heildarskotnýtingu, 6 af 11 í þristum, aðeins einn tapaðan bolta og 45 framlagsstig fyrir frammistöðuna, en það er hæsta framlag sem leikmaður hefur fengið í leik það sem af er vetri.
Bónus deild karla
- umferð – Linards Jaunzems / KR
- umferð – Shaquille Rombley / Stjarnan
- umferð – Taiwo Badmus / Valur
- umferð – Khalil Shabazz / Njarðvík
- umferð – Khalil Shabazz / Njarðvík
- umferð – Devon Thomas / Grindavík
- umferð – Jacob Falko / ÍR
- umferð – Daniel Mortensen / Grindavík