Lykill býður á landsleik sunnudaginn 12. nóvember í Ólafssal

Komandi sunnudag 12. nóvember mun landslið kvenna leika annan leik sinn í undankeppni EuroBasket 2025 gegn Tyrklandi í Ólafssal. Leikurinn er annar tveggja sem liðið leikur í þessum fyrsta glugga undankeppni keppninnar, en sá fyrri er á fimmtudag gegn Rúmeníu ytra.

Heimaleikurinn 12. nóvember verður í Ólafssal í Hafnarfirði kl. 18:30. Aðgangur verður ókeypis í boði Lykils, en Lykill hefur verið öflugur samstarfsaðili KKÍ í meira en 10 ár.

Hérna er lið Íslands í glugganum

Hérna er heimasíða mótsins