spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaLogi frá næstu sex vikurnar "Reyni að horfa á þetta jákvæðum augum"

Logi frá næstu sex vikurnar “Reyni að horfa á þetta jákvæðum augum”

Logi Gunnarsson leikmaður Njarðvíkur meiddist á hnéi í leik liðsins gegn Val. Samkvæmt tilkynningu félagsins er nú komið í ljós að um skaddað liðband er að ræða og verður hann því frá næstu sex vikurnar. Samkvæmt læknum Loga komu fyrirbyggjandi æfingar sem Logi hefur gert daglega í veg fyrir að ekki fór verr, en að hans sögn hefði ferillinn þá mögulega verið í hættu við atvikið.

Tilkynning:

Ljóst er að Logi Gunnarsson er með skaddað liðband í hné og verður því frá keppni næstu vikurnar. Logi meiddist í leik gegn Valsmönnum og kenndi sér meins í hnénu eftir leik. Eftir myndatöku í gær þriðjudag er ljóst að Logi verður frá keppni um tíma en vanalega tekur um 6 vikur að jafna sig af álíka meiðslum.


„Það sem ég óttaðist mest var að krossbandið væri slitið og tímabilið og hreinlega ferillinn í hættu. Þetta eru því í raun jákvæðar fréttir. Ég reyni að horfa á þetta jákvæðum augum og mér líður vel núna. Læknar sem skoðuðu myndirnar segja að fyrirbyggjandi æfingar sem ég geri daglega séu í raun að bjarga mér, sagði Logi í samtali við miðla Njarðvíkur.

Fréttir
- Auglýsing -