Victor Wembanyama fór hamförum í 112–111 sigri San Antonio Spurs á Dallas Mavericks í nótt, þrátt fyrir að hafa glímt við veirusýkingu síðustu daga. Frakkinn ungi viðurkenndi eftir leik að hann hefði verið orkulaus og slappur upp á síðkastið, en í leiknum hafi lappirnar loksins mætt aftur til leiks.
Þessi endurkoma orku skilaði frammistöðu sem hefur ekki sést í NBA-deildinni í hálfa öld. Wembanyama setti persónulegt stigamet með 52 stigum, reif niður 24 fráköst og varði átta skot. Þarf að leita allt aftur til ársins 1974, til daga goðsagnarinnar Bob McAdoo, til að finna leikmann sem nær að skila að minnsta kosti 50 stigum, 20 fráköstum og fimm vörðum skotum í sama leiknum.
Yfirburðirnir voru algjörir strax frá fyrstu mínútu. Fyrir leikhlé var Wembanyama þegar kominn með 29 stig, 15 fráköst og fimm varin skot – nokkuð sem enginn leikmaður hefur leikið eftir í einum hálfleik síðustu áratugi.
Stórleikurinn tryggði San Antonio sinn sjötta sigur í röð og situr liðið með sex sigra eftir átta leiki, á meðan Dallas hefur tapað fjórum af fyrstu átta sínum. Með þessari frammistöðu hækkaði meðaltal Wembanyama í vetur upp í 29,0 stig, 12,4 fráköst og 4,5 varin skot í leik.




