HomeFréttirLele Hardy er SKRÍMSLI. Óstöðvandi SKRÍMSLI!

Lele Hardy er SKRÍMSLI. Óstöðvandi SKRÍMSLI!

SCHENKERHÖLLIN Haukum leiðist ekki að spila körfubolta en leikurinn í kvöld var leikur númer tvö í röð þar sem þær fara í framlengingu. Það var tímapunktur í fjórða leikhluta þar sem að Haukar gátu rekið smiðshöggið og klárað leikinn en í stað þess þá leyfðu þær KR að komast í takt við leikinn og fóru þess í stað í framlengingu.
Þá sagði Lele Hardy stopp og fór fyrir Haukum og sá til þess að þær lönduðu sigrinum, 72-66.
 
Annnars fór leikurinn mjög rólega af stað þar sem liðin skiptust nánast á að skora út leikhlutann og var það KR sem átti seinustu sóknina og leiddu þær því 15-16.
 
Í öðrum leikhluta spiluðu KR glæsilegan körfubolta þar sem flæðið á boltanum í sóknaraðgerðum þeirra var algjört augnayndi. Í vörninni skelltu þær í lás þar sem Haukar áttu ekki séns í að komast inn í teiginn og þurftu þær að sætta sig við ógrynni af þriggjastigaskotum, og þegar ég segi ógrynni þá meina ég ógrynni, en þær voru 0 af 17 í þriggjastigaskotum í hálfleik. En áður en fyrri hálfleik lauk kom upp skemmtilegur farsi þar sem liðin tóku samtals þrjú leikhlé á seinustu 5 sekúndum leikhlutans! Og það versta var að það kom ekkert út úr þessum leikhléum nema slæmar sendingar sem fóru útaf.
 
Það tók Hauka 18 tilraunir og 22 mínútur til að hitta loksins úr þriggjastigaskoti en þær byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og yfirspiluðu KR algjörlega 14-6 á fyrri helming leikhlutans og komust yfir 35-34 eftir að KR hafði verið 8 stigum yfir í hálfleik. Þá vöknuðu KR af værum blundi og ákváðu að taka þátt í leiknum sem varð mjög jafn til loka leikhlutans sem KR kláraði með góðri sókn þar sem þær skoruðu er leiktíminn rann út og leiddu 43-44 fyrir fjórða leikhluta.
 
Líkt og í byrjun þriðja leikhluta þá hófu Haukar leika af krafti og voru þær fljótar að koma sér í 5 stiga forystu og leit út fyrir að þær þyrftu aðeins að skora eina körfu í viðbót til að drepa allar vonir KR um að eiga möguleika. Svo fór aldeilis ekki og fóru Haukastúlkur illa af ráði sínu og brenndu af þremur sniðskotum. Helga Einarsdóttir og Simone Jaqueline Holmes komu KR aftur inn í leikinn sem var æsispennandi undir lokin. Holmes leit út fyrir að vera búin að tryggja KR sigurinn er hún kom þeim þremur stigum yfir með rétt rúma mínútu til leiksloka en þá smellti Lele Hardy niður þrist til að jafna leikinn og var það einungis þristur númer tvö hjá Haukum í 24 tilraunum.
 
Í framlengingunni tók Hardy leikinn í sínar hendur og sá til þess að Haukar færu með sigur af hólmi en hún átti ansi hreint magnaða leik í kvöld þar sem hún TROÐFYLLTI tölfræðiskjalið en hún var með 40 stig, 29 fráköst, 6 stoðsendingar og 5 stolna bolta eða 61 framlagsstig.
 
 
 
Mynd – Axel FInnur/ SKRÍMSLI!
Fréttir
- Auglýsing -