Fjöldi leikja er á dagskránni í dag, yngri flokkar, neðri deildir og úrvalsdeildirnar að sjálfsögðu. Tveir leikir vekja þó væntanlega mestu athyglina en það eru undanúrslitaviðureignir KR og Keflavíkur í kvennaflokki og þá hefjast undanúrslitin í karlaflokki þegar Íslands- og deildarmeistarar Snæfells taka á móti Stjörnunni í Stykkishólmi.
Iceland Express deild karla:
19:15 Snæfell-Stjarnan
Snæfell lagði Hauka 2-1 í 8-liða úrslitum deildarinnar og Stjarnan lagði Grindavík 2-1. Þetta er í fyrsta sinn sem Garðbæingar leika í undanúrslitum en það eru Snæfellingar sem eiga heimaleikjaréttinn í rimmunni. Þrjá sigra þarf til þess að komast áfram og inn í úrslitin.
Iceland Express deild kvenna:
19:15 KR-Keflavík
Staðan í einvíginu er 2-1 Keflavík í vil. Viðureign kvöldsins er sú fjórða í röðinni hjá liðunum en Keflavíkursigur í kvöld þýðir að Íslandsmeistarar KR eru komnir í sumarfrí. Hafi KR sigur í leiknum verður oddaleikur í Keflavík.





