Þrír leikir eru á dagskránni í Lengjubikar karla í kvöld og hefjast þeir allir kl. 19.15. Snæfell og Stjarnan mætast í hreinum úrslitaleik í C-riðli en bæði lið hafa 4 stig og aðeins eitt stig sem skilur liðin að í innbyrðisviðureigninni svo gera má ráð fyrir miklum bardaga í Hólminum í kvöld.
Lengjubikar karla í kvöld kl. 19.15.
KR-ÍR
Snæfell-Stjarnan
Fjölnir-KFÍ
KR verður að leggja erkifjendurna í ÍR til þess að eiga möguleika á því að komast í undanúrslit en KR og Þór Þorlákshöfn hafa bæði 8 stig í A-riðli en Þór hefur betur innbyrðis. Ef Þór vinnur Skallagrím annað kvöld eru þeir komnir í undanúrslit sama hvernig viðureign KR og ÍR fer í kvöld. Úrslit í viðureign Fjölnis og KFÍ skipta svo ekki máli þar sem Grindavík er þegar búið að hafa sigur í B-riðli.
Í dag er einnig leikið í 2. deild karla, fjöldi leikja í yngri flokkum og þá er B-liða keppni karla í gangi sem og 1. deild kvenna en heildaryfirlit yfir leiki dagsins má sjá hér.