HomeFréttirLauren Hill kveður með körfu

Lauren Hill kveður með körfu

 Það snúast ekki allar sögur um það að vinna leiki, það sannaðist einu sinni sem oftar þegar kvennalið Mount St. Joseph og Hiram mættust í háskóladeildinni vestanhafs í byrjun nóvember á þessu ári.
 
 Lauren Hill sem vísað er til í fréttafyrirsögninni varð nokkuð óvænt miðpunktur athyglinnar. Hill hafði greinst með banvænt krabbamein í heila stuttu áður en háskólaferill hennar átti að hefjast, en hún átti þann draum einan að fá tækifæri til að spila leik með háskólaliði sínu, Mount St. Joseph. Hún æfði með liði sínu fyrir leikinn, en þjálfari liðsins óttaðist að hún gæti ekki ferðast með liðinu til Hiram þar sem ástand hennar versnaði nokkuð í aðdraganda leiksins. Það var þá sem andstæðingarnir, Hiram, ákváðu að gefa eftir heimavöllinn og ferðast frekar til Mount St. Joseph, svo að Lauren Hill þessi gæti fengið tækifæri til að spila einn leik. Leiknum var einnig flýtt um tvær vikur til að hjálpa Hill. Sagan er ansi hrífandi, en nálgast má upprunalegu frétt Upworthy hérna.
 
 
Hil lék þrjá leiki til og skoraði 8 stig til viðbótar við þau tvö sem sjást í vídeóinu. Hún setti skóna á hilluna ekki alls fyrir löngu en var í staðinn útnefnd sem heiðursþjálfari liðsins
 
Fréttir
- Auglýsing -