spot_img
HomeFréttirLára Kristjánsdóttir sigraði NBA áskorunina

Lára Kristjánsdóttir sigraði NBA áskorunina

Fyrir úrslitakeppni NBA deildarinnar efndi Karfan.is til áskorunnar. 157 lesendur tóku þátt og spáðu fyrir um úrslit hennar. Keppnin var spennandi allt fram til lokaúrslita, en að þeim loknum var það Lára Kristjánsdóttir sem að sigraði keppnina með 375 stigum.

Var Lára með rétt niðurstöðu í öllum seríum nema einni, en henni mistókst að sjá fyrir að Portland Trail Blazers myndu slá út Denver Nuggets í annarri umferðinni. Þá var hún einnig með leikjafjölda einvígis á hreinu í fjórum seríum.

Hér er hægt að sjá spádóma Láru

Afar fáir sáu fyrir að Toronto Raptors yrðu meistarar, en Lára var ein aðeins níu, eða 5,7%, sem spáðu titlinum til Kanada.

Í öðru sætinu hafnaði Jóhann Örn Bjarkason með 360 stig og í því þriðja var svo Gunnlaugur Jónasson með 340.

Hér er hægt að sjá lokastöðu áskorunarinnar

Fréttir
- Auglýsing -