Árið 2015 hefur ekki farið vel af stað fyrir Haukastúlkur en þær hafa mátt þola tap í fyrstu fjórum leikjum ársins. Þessi sigur var því kærkominn enda voru þær búnar að missa þriðja sætið í hendur Grindavíkur og komnar með Val óþæginlega nálægt sér í fimmta sætinu, en aðeins 2 stig skildu liðin að fyrir leikinn í kvöld. Dagbjört Samúelsdóttir var þó staðráðin í því að stöðva taphrinu sinna stúlkna. Hún var sjóðandi heit í leiknum og skoraði hún 10 stig í öðrum leikhluta þar sem Haukar lögðu grunninn að sigrinu með því að vinna leikhlutann með 15 stigum. Dagbjört var að leik loknum stigahæst með 25 stig og var hún einnig annar stoðsendingahæsti leikmaðurinn í leiknum með 4 stoðsendingar. Dagbjört var með einkar glæsilega skotnýtingu en hún setti 5/8 þriggjastigaskotum sínum og því með 63% skotnýtingu handan línunnar og ekki hitti hún verr nær körfunni því hún var með 67% heildarskotnýtingu.
Fyrsti leikhlutinn var mjög jafn og lauk honum 18-18. Breiðabliksstúlkur skiptu sóknarhlutverkinu mjög vel á milli sín og voru það sex leikmenn sem stóðu á bakvið stig þeirra á meðan að aðeins þrjár sáu um stigin fyrir Haukastúlkur.
Leikurinn hélt áfram að vera mjög jafn og skiptust liðin á körfum. Þegar leikhlutinn var rétt rúmlega hálfnaður tóku Haukar 8-0 kafla sem kom þeim í 36-27. Stuttu síðar kveiknaði í Dagbjörtu Samúelsdóttur og setti hún tvo þrista í röð og Haukar komnar 11 stigum yfir, 42-31. Hún var ekki hætt og bætti við körfu áður en fyrri hálfleik lauk og var hún þá komin með 10 stig í leikhlutanum og 15 stig í heildina. Það var þó ekki nóg til að vera stigahæst í hálfleik því Lele Hardy var með tveimur stigum meira eða 17 stig.
Dagbjört byrjaði þriðja leikhluta af miklum krafti og skoraði hún 7 stig á rétt tæpum tveimur mínútum. Breiðablik héldu þó í við Hauka á fyrstu mínútunum en síðan kom 7-0 kafli hjá þeim sem var leiddur áfram af Elínu Sóley og kórónaður af Arielle Wideman með þriggja stiga körfu áður en Ívar Ásgrímsson tók leikhlé. Það bar tilætlaðan árangur og áttu Haukar 7-0 kafla að því loknu áður en Blikum tókst að svara. Haukum tókst því að bæta við foystu sína og leiddu 67-48 fyrir loka leikhlutann.
Haukar fóru illa með Breiðablik í upphafi fjórða þar sem þær áttu 10-2 syrpu á fyrstu þremur mínútunum. Eftir það var leiknum algjörlega lokið og fengu leikmenn númer 9-12 á bekknum hjá báðum liðum að spreyta sig á lokamínútunum.
Mynd/ Þetta var mjög kunnuleg sjón í kvöld




