HomeFréttirKR hélt Njarðvík í þægilegri fjarðlægð

KR hélt Njarðvík í þægilegri fjarðlægð

 KR sigraði Njarðvík í 8 liða úrsltium Lengjubikarsins í vesturbænum í kvöld, 92-81. KR byrjaði leikinn betur og höfðu náð 8 stiga forskoti eftir fyrsta leikhluta sem Njarðvík svaraði með látum og skoruðu 30 stig í öðrum leikhluta eftir 13 stiga fyrsta leikhluta.  KR hafði því eins stigs forskot þegar flautað var til hálfleiks.  KR tók af skarið í seinni hálfleik og náðu upp í um og yfir 10 stig.  Því forskoti héldu þeir til leiksloka þrátt fyrir nokkrar góðar tilraunir gestana og enn fleiri tækifæri til þess að minnka muninn þá komust þeir ekki nær KR en svo að heimamenn sigldu nokkuð þægilegum sigri í höfn og yngstu leikmenn beggja liða fengu að spreyta sig á lokamínútunum.  
 
 
Stigahæstur í liði KR var Helgi Már Magnússon með 25 stig og 10 fráköst en næstu menn voru Michael Craion með 19 stig og 12 fráköst og Brynjar Þór Björnsson með 15 stig.  Hjá Njarðvík var Logi Gunnarsson stigahæstur með 23 stig en næstu menn voru Dustin Salisbery og Maciej Baginski með 16 stig hvor.  
 
Tölfræði leiksins má finna hér 
 
Fréttir
- Auglýsing -