KR og Valur mættust í kvöld í DHL-höllinni í leik sem skipti engu máli nema fyrir stoltið. KR voru búnir að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og Valur voru fallnir í fyrstu deildina. Það fór eins og búast mátti við og KR unnu örugglega 101-78.
KR skoruðu fyrstu körfuna og áttu eftir að leiða leikinn það sem eftir var fyrir utan í stöðunni 2-2 og 5-5. Liðin voru ekkert sérstaklega varnarsinnuð og átti hvorugt liðið í of miklum erfiðleikum með að athafna sig í sókninni.
KR fengu að leika lausum hala fyrir utan þriggjastigalínuna og fengu þeir opinn þrist á eftir opnum þrist. Eftir aðeins 13 mínútna leik voru þeir komnir með 8 þrista í 15 skotum. Ólafur Már Ægisson var sjóðandi heitur og skoraði hann 13 stig á aðeins 7 mínútum í fyrri hálfleik. KR leiddu 56-44 í hálfleik.
Liðin virtust telja úrslitin ráðin og var spilamennska þeirra frekar kærulaus í upphafi seinni hálfleiks. Mun meira um mistök og lítið skorað. Enda voru KR alltaf með yfirhöndina og Valsmenn ekki líklegir til að gera leikinn spennandi. Staðan að loknum þriðja leikhluta 80-63.
KR voru með fjóra leikmenn úr bikarmeistarahóp drengjaflokks í liðinu í dag, þá Högna Fjalarsson, Friðrik Þjálfa Stefánsson, Vilhjálm Kára Jensson og Illuga Steingrímsson. Eftir að hafa hyllt liðið í hálfleik fengu strákarnir að spreyta sig í leiknum frá tæpum þremur mínútum upp í átta mínútur.
Mynd/ Skjáskot frá KRTV.is – Brynjar lyftir deildarbikarnum á loft




