spot_img
HomeFréttirKjartan Atli tekur við keflinu á Selfossi

Kjartan Atli tekur við keflinu á Selfossi

 
Silfurlið Stjörnunnar í Iceland Express deild karla hefur orðið fyrir blóðtöku þar sem Kjartan Atli Kjartansson hefur sagt skilið við Garðbæinga og hefur nú tekið við stjórnartaumunum á Selfossi. Kjartan Atli tekur við sem þjálfari FSu í 1. deild karla og verður einnig yfirþjálfari yngri flokka. Kjartan sagðist í samtali við Karfan.is ekki vera búinn að gera upp við sig hvort hann muni spila með FSu eða hversu mikið.
,,FSu hafði samband við mig eftir tímabilið í vor. Góðvinur minn Brynjar Karl byggði FSu upp og við höfum oft rætt um árin hans þar. Svo kom þetta upp og þá fannst mér þetta spennandi tækifæri fyrir mig sem þjálfara. Frábær aðstaða og virkilega spennandi stjórn, hef heyrt mjög góða hluti um hana. Auðvitað er erfitt að fara frá Stjörnunni, kom þangað þegar félagið var lítil Stjarna og nú má segja að það sé orðið að stórri plánetu á sporbaug við toppinn, bæði í meistaraflokki og yngri flokkum. En svona æxluðust hlutirnir, FSu er virkilega spennandi tækifæri og ég fer þangað fullur tilhlökkunnar,“ sagði Kjartan Atli í samtali við Karfan.is en hann lék 29 leiki í úrvalsdeild með Stjörnunni á nýafstaðinni leiktíð og var með 5,1 stig að meðaltali í leik.
 
,,Ég verð fyrst og fremst þjálfari á Selfossi. Ég hef ekki gert það upp við mig hvort ég spila, eða hversu mikið. Eina sem ég veit er að ég er að vinna með einkaþjálfara og ætla að mæta til leiks í toppformi. Mitt helsta verk verður að bæta þá stráka sem eru að spila með liðinu og það verður gert með því að æfa meira en aðrir. Ég verð svo yfirþjálfari yngriflokkanna og hef auðvitað mikla reynslu af svona uppbyggingastarfi með Stjörnunni þannig að þetta er eitthvað sem ég hef ákveðna reynslu af og fékk að sjá á eigin skinni hvað virkaði og hvað virkaði ekki þegar við vorum að byggja upp í Garðabænum,“ sagði Kjartan sem er 26 ára gamall og fylgdist vel með félaga sínum Brynjari Karli og Jóni Kr. Gíslasyni.
 
,,Ég hef fengið að læra af tveimur bestu þjálfurum landsins í Brynjari Karli og Jóni Kr. og það er meira virði en nokkurt þjálfaranamskeið, ég lá bara á línunni hjá þeim og reyndi að læra eins og ég gat,“ sagði Kjartan sem m.a. gerði 10. flokk Stjörnunnar að Íslandsmeisturum á síðustu leiktíð og landaði silfrinu með flokkinn á Scania Cup í Svíþjóð.
 
Mynd/ www.fsukorfubolti.net  – Kjartan Atli við undirskrift samningsins á Selfossi.
Fréttir
- Auglýsing -