HomeFréttirKeflavík Íslandsmeistari í unglingaflokki kvenna

Keflavík Íslandsmeistari í unglingaflokki kvenna

 
Keflvíkingar eru Íslandsmeistarar í unglingaflokki kvenna eftir 72-70 sigur á Snæfell í hádramatískum leik þar sem úrslitakarfan kom þegar 0,18 sekúndur voru til leiksloka. Eva Rós Guðmundsdóttir var valin besti maður leiksins með 17 stig, 11 fráköst og 8 stoðsendingar í liði Keflavíkur.
Keflvíkingar mættu með grimma vörn til leiks og leiddu 17-12 að loknum fyrsta leikhluta. Hólmarar sem höfðu ekki tapað leik á þessu tímabili í unglingaflokki kvenna bitu frá sér í öðrum leikhluta og komust í 25-28 þegar Falur tók leikhlé fyrir Keflavíkurkonur. Keflvíkingar náðu þó að klóra í bakkann fyrir hálfleik þegar allt benti til þess að Hólmarar ætluðu að stinga af og staðan 35-37 fyrir Snæfell í leikhléi.
 
Í síðari hálfleik gerðu Keflvíkingar átta stig í röð áður en Snæfell komst á blað. Keflvíkingar leiddu síðan lungann úr síðari hálfleik uns Snæfell náði að jafna metin í 70-70 af vítalínunni. Keflvíkingar áttu þá lokasóknina þegar 25 sekúndur voru til leiksloka. Keflavík gaf sér góðan tíma í lokasóknina uns Telma Lind Ásgeirsdóttir fékk boltann í Snæfellsteignum og skoraði, boltinn dansaði á hringnum og datt loks í netið þegar 0,18 sekúndur voru til leiksloka.
 
Það sem gerðist næst var að margir hverjir heimtuðu tæknivíti fyrir leikmenn sem þutu inn á völlinn til að fagna lokakörfunni. Þau tæknivíti litu aldrei dagsins ljós og Snæfell tók innkast á miðjum velli með 0,18 sekúndur eftir af leiknum, skotið reið af en hitti ekki hringinn og Keflavík fagnaði sigri 72-70.
 
Eins og fyrr segir var Eva Rós Guðmundsdóttir valin besti maður leiksins með 17 stig, 11 fráköst og 8 stoðsendingar. Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 25 stig og 5 fráköst og Árný Sif Gestsdóttir skoraði 12 stig. Hjá Snæfell var Björg Guðrún Einarsdóttir með 19 stig og 7 stoðsendingar og Helga Hjördís Björgvinsdóttir gerði 16 stig og tók 8 fráköst.

Myndasafn úr leiknum

 
Fréttir
- Auglýsing -