Dagur tvo í bikarveislu yngri flokka er þar með hafinn. Fyrsti leikur á dagskrá var úrslitaleikur 9. flokks kvenna þar sem Keflavík mætti Hrunamönnum. Keflavík voru í smá búningavandræðum og þurfti að fá lánaða búninga hjá Grindavík til að hita upp í á meðan að þær biðu eftir að þeirra búningar myndu skila sér í hús. Sem þeir gerðu á endanum og gátu Keflavíkurstúlkur því hafið leik í sínum eigin búningum.
Þær létu búningavandræðin ekkert á sig fá þar sem þær fóru með auðveldan 60-29 sigur af hólmi.
1. Leikhluti
Keflavík skoraði fyrstu körfu leiksins og skiptust liðin á körfum þangað til eftir stöðuna 6-5 þegar Keflavík tóku öll völd á vellinum og kláruðu leikhlutann á 9-0 kafla og þar með 15-5 yfir að honum loknum.
2. Leikhluti
Eftir full frjálsan aðgang Keflvíkinga að svæðisvörn Hrunamanna í fyrsta leikhluta þá komu Hrunamenn ákveðnari til leiks í öðrum leikhluta og tók það Keflavík smá tíma að finna glufu þar á. Stuttu eftir að ísinn hafði verið brotinn smellti Andrea Einarsdóttir niður þrist, númer tvö hjá henni í leiknum, og kom Keflavík í 20-5. Katla Rún Garðarsdóttir átti magnaðan kafla fyrir Keflavík þar sem að hún skoraði 6 stig ásamt því að taka fráköst hvort sem var í vörn eða sókn. Hrunamenn tóku leikhlé til að reyna stoppa þessa sýningu hjá Kötlu. Það tókst ekki alveg þar sem að hún átti eftir að bæta við körfu áður en flautað var til hálfleiks en Hrunamenn vöknuðu aðeins til lífsins og fóru að vera duglegri að sækja að körfunni þó að það hefði ekki skilað þeim stigi. Keflavík með afgerandi 32-8 forystu í hálfleik.
3. Leikhluti
Katla lét hálfleikspásuna ekkert kæla sig niður og hóf hún seinni hálfleik á 5-0 kafla fyrir Keflavík. Þóranna Kika Hodge-Carr var með tvo stolna bolta á stuttum tíma fyrir Keflavík, í fyrra skiptið fór hún sjálf í hraðaupphlaup og í það seinna var hún með stoðsendingu á Kötlu. Keflavík komnar í 43-8. Ragnheiður Björk Einarsdóttir var þá komin með nóg og skoraði hún tvívegis á skömmum tíma fyrir Hrunamenn ásamt því að fá víti að auki án þess þó að ná að setja það niður. Barátta Ragnheiðar Bjarkar smitaði vel út frá sér og splæsti Þórdís Jóna Kristjánsdóttir í þrist og Birgit Ósk Snorradóttir skoraði síðan eftir stoðsendingu frá Ragnheiði Björk. Hrunamenn enduðu því leikhlutann á frábærum 9-0 kafla.
4. Leikhluti
Keflavík byrjuðu mjög sterkar í fjórða leikhluta og létu Hrunamenn vita að þær voru ekki að fara fá að koma sér inn í leikinn. Þær skoruðu 6-0 áður en Þórdís kom Hrunamönnum á blað í fjórða. Þóra Jónsdóttir setti “loksins” (að eigin sögn) þrist fyrir Keflavík og kom þeim í 52-19. Sú karfa kom af stað góðu stuði hjá báðum liðum í þriggjastigaskotum þar sem þrjár slíkar áttu eftir að bætast við áður en leikurinn var búinn. Forskot Keflavíkur var of mikið og þrátt fyrir að Hrunamenn enduðu leikinn með sóma þá var sigur Keflavíkur öruggur.
Leikmaður leiksins: Þóranna Kika Hodge-Carr
Byrjunarlið Keflavíkur:
Katla Rún Garðarsdóttir
Þóranna Kika Hodge-Carr
Birta Rós Davíðsdóttir
Þóra Jónsdóttir
Birna Valgerður Benónýsdóttir
Byrjunarlið Hrunamanna:
Þórdís Jóna Kristjánsdóttir
Sigríður Magnea Kjartansdóttir
Laufey Helga Ragnheiðardóttir
Ragnheiður Björk Einarsdóttir
Birgit Ósk Snorradóttir
Mynd/ Nökkvi – Keflavíkurstúlkur glaðar með bikarinn




