spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaJonathan Lawton og Jordan Connors yfirgefa Þór Akureyri

Jonathan Lawton og Jordan Connors yfirgefa Þór Akureyri

Þór Akureyri hefur sagt upp samningi sínum við þá Jordan Connors og Jonathan Lawton og munu þeir báðir vera á förum til síns heima samkvæmt staðarmiðlinum akureyri.net.

Báðir hafa þeir verið mikið meiddir og ekki getað hjálpað Þórsurum það sem af er deildarkeppni, en Þór situr í neðsta sæti deildarinnar stigalausir eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Jonathan meiddist í fyrstu umferð Subway deildarinnar, en Jordan nokkru seinna í VÍS bikarkeppninni.

Samkvæmt heimildum mun félagið innan tíðar semja við tvo leikmenn í stað þeirra tveggja.

Fréttir
- Auglýsing -