HomeFréttirJón Ólafur: Erum of fljótir að pirra okkur á dómurunum

Jón Ólafur: Erum of fljótir að pirra okkur á dómurunum

 
Jón Ólafur Jónsson var stigahæstur í liði Snæfells en það dugði skammt gegn sjóðandi heitum Stjörnumönnum sem eru komnir 2-0 yfir og hafa stillt deildar- og Íslandsmeisturunum upp við vegg. Það var ljóst fyrir leikinn að það væri ekki auðvelt verk að mæta Stjörnunni í Ásgarði.
“Þeir eru búnir að vinna hérna 5 leiki í röð og Jovan var bara meinið í dag, við náðum alls ekki að stoppa hann. Alltof mikið af feilum í varnarleiknum hjá okkur og menn bara ekki á sömu blaðsíðu.”
 
Það hefur verið í fjölmiðlum mikil umræða um pirring og leiðindi milli manna í þessum tveimur liðum og það fór ekki á milli mála að mönnum var heitt í hamsi í kvöld. Hefur þetta of mikil áhrif á Snæfellsliðið?
“Við erum of fljótir að fara að pirra okkur á dómurum, þetta er bara sama gamla sagan eins og er búið að vera undanfarið. Það vantar bara meiri stemmingu í þetta hjá okkur. Að menni hafi gaman af þessu og geri þetta saman”
 
Snæfell byrjaði leikinn betur og höfðu frumkvæðið framan af. Þegar leið á annan leikhluta snérist taflið við og á stuttum tíma í öðrum og þriðja leikhluta var 10 stiga forskot Snæfells orðið að 10 stiga forskoti Stjörnunnar. Hvað fór úrskeiðis hjá Snæfell á þessum kafla?
 
“Eiginlega bara nákvæmlega það sama og gerðist í fyrsta leiknum. Hann sýndi okkur það í hálfleik, við erum að keyra einhver 15 plús kerfi í fyrsta fjórðung, þá rúllaði þetta fínt, gott flæði á boltanum og boltinn var að fara inn og út og gott jafnvægi þar á milli. Svo í öðrum fjórðung held ég að við höfum stillt upp þrisvar, fjórum sinnum samkvæmt blaðinu. Enda var það bara tilviljunakenndur sóknarleikur og þegar við erum að spila þannig þá er miklu auðveldara fyrir Stjörnuna að fá hraðaupphlaup og auðveldar körfur”.
 
Núna er Snæfell komið upp við vegg. Stjarnan þarf bara einn leik til að komast í úrslitaeinvígið. Hvernig leggja menn upp þann leik?
 
“Það sýnir úr hverju menn eru gerðir eins og sagt er. Menn verða virkilega að rífa sig upp. Það þýðir ekkert að fara snemma í sumarfrí. Við verðum að fara að finna einhvern neista sem við höfðum hérna á tímabilinu. Við spiluðum hérna fínan vetur, fína deild og allt rosa gaman. Og svo um leið og við fáum eitthvað mótlæti og eitthvað bjátar á þá erum við alltof fljótir að verða pirraðir. Við verðum að fá einhvern neista í þetta og stemmingu”.
 
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski
 
Viðtal/ Gísli Ólafsson
Fréttir
- Auglýsing -