CAI Zaragoza tók á móti Real Madrid í ACB deildinni í gær þar sem Madrídingar fóru með nokkuð öruggan sigur af hólmi á útivelli. Lokatölur reyndust 67-84 Real Madríd í vil þar sem Jón Arnór Stefánsson gerði 6 stig í liði Zaragoza.
Jón var ekki í byrjunarliðinu í gær en lék í rúmar 15 mínútur og skoraði 6 stig. Þá var Jón með tvær stoðsendingar og eitt frákast. Bracey Wright gerði 23 stig fyrir Zaragoza í leiknum en hjá Real Madrid var Jaycee Carroll með 20 stig.
Haukur Helgi Pálsson var svo ekki í búning í gær þegar Manresa lá 67-75 á útivelli gegn Valencia.




