HomeFréttirJón með 13 stig í sigri Zaragoza

Jón með 13 stig í sigri Zaragoza

CAI Zaragoza vann sinn annan leik í spænsku ACB deildinni í dag þegar liðið lagði Murcia. Jón Arnór Stefánsson var næststigahæstur í liði Zaragoza með 13 stig. Þá tapaði Manresa, lið Hauks Helga Pálssonar, á útivelli gegn Lagun Aro.
 
CAI Zaragoza 67-59 UCAM Murcia
Jón Arnór Stefánsson gerði 13 stig í liði Zaragoza á tæpri 21 mínútu. Jón setti niður öll fimm skotin sín í teignum og einn þrist í þremur tilraunum. Rafael Hettsheimer var stigahæstur í sigurliði Zaragoza með 17 stig og 15 fráköst. Eftir sigurinn í dag er Zaragoza í 12. sæti ACB deildarinnar.
 
Lagun Aro GBC 88-82 Assignia Manresa
Micha Downs gerði 18 stig í liði Manresa en Haukur Helgi Pálsson kom ekki við sögu í leiknum. Eftir tapið í dag er Manresa í 8. sæti ACB deildarinnar.
 
Fréttir
- Auglýsing -