Jón Axel stigahæstur gegn Real Valladolid

Jón Axel Guðmundsson og HLA Alicante máttu þola tap gegn Real Valladolid í Leb Oro deildinni á Spáni í kvöld, 54-75.

Á tæpum 37 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel 17 stigum, 6 fráköstum og 3 stoðsendingum.

Alicante eru eftir leikinn í 7. sæti deildarinnar með einn sigur og tvö töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks