Álftanes tryggði sér toppsæti Bónus deildar karla eftir hreint lygilegan 130–110 heimasigur gegn Keflavík í Kaldalónshöllinni í kvöld.
Bæði lið mættu ósigruð til leiks en það voru heimamenn sem gengu algjörlega á lagið sóknarlega og unnu sinn þriðja deildarsigur í röð á meðan Keflvíkingar máttu þola sitt fyrsta tap í vetur eftir hetjulega baráttu. Skugga á leikinn hjá gestunum bar þó að lykilmaður þeirra, Jamir Chaplin, varð fyrir meiðslum og neyddist til að yfirgefa völlinn eftir að hafa farið á kostum framan af.
Fyrstu þrír leikhlutarnir voru gríðarlega jafnir og bauð leikurinn upp á hreint ótrúlegan hraða og stigaskor beggja vegna vallarins. Keflvíkingar leiddu með þremur stigum eftir fyrsta leikhluta (29–32) en Álftnesingar svöruðu fyrir sig í öðrum leikhluta (34–29) og leiddu með tveimur stigum í hálfleik, 63–61.
Eftir hnífjafnan þriðja leikhluta (32–32) stóðu leikar 95–93 fyrir lokaátökin. Þar sýndu heimamenn hins vegar mikla yfirburði; skoruðu 35 stig gegn 17 stigum gestanna og lokuðu leiknum með tuttugu stiga sigri.
Álftanes sýndi fágæta skotnýtingu allan leikinn og hitti úr 62% skota sinna utan af velli (47/75), þar af 68% í tveggja stiga skotum (35/51) og 50% í þristum (12/24), auk þess að nýta 24 af 27 vítaskotum sínum (88%). Þá réðu heimamenn öllu inni í teignum þar sem þeir skoruðu 58 stig gegn 22 stigum Keflvíkinga og tóku 42 fráköst gegn 25.
Sigurður Pétursson fór algjörlega á kostum í liði Álftaness og skoraði 36 stig, tók 5 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og stal 5 boltum. Dedrick Basile stóð honum lítið að baki með 31 stig, 7 stoðsendingar og 6 fráköst, Jordan Semple landaði glæsilegri tvennu með 18 stigum og 11 fráköstum ásamt 5 stoðsendingum, og Martins Laksa bætti við 18 stigum.
Hjá Keflavík dró Hilmar Pétursson vagninn með 32 stig og 5 stoðsendingar. Chaplin átti stórleik framan af og skilaði 29 stigum og 4 fráköstum áður en hann meiddist, Jaka Brodnik skoraði 15 stig og Bragi Guðmundsson skilaði 13 stigum og 4 fráköstum.
Mynd / Valþór Pétursson




