HomeNeðri deildir1. deild kvennaKeflvíkingar sneru taflinu við gegn Blikum – Inga Lea fór algjörlega hamförum

Keflvíkingar sneru taflinu við gegn Blikum – Inga Lea fór algjörlega hamförum

Þremur leikjum var að ljúka í 1. deild kvenna í kvöld þar sem Keflavík b hélt sigurgöngu sinni áfram með sterkum heimasigri gegn Breiðabliki, Haukar u mörðu ótrúlegan tveggja stiga útisigur í Borgarnesi og Þór frá Akureyri vann öruggan sigur í Breiðholti.  

Í Blue-höllinni tryggði Keflavík b sér sinn þriðja sigur í jafnmörgum leikjum með 82–78 sigri gegn Breiðabliki eftir að hafa snúið taflinu sér í vil í seinni hálfleik (29–22 og 26–22). Oddný Hulda Einarsdóttir fór á kostum með 27 stig og 10 stolna bolta, og Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir skoraði 24 stig og tók 6 fráköst. Hjá Blikum voru Telma Hrönn Loftsdóttir, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir og Vilborg Óttarsdóttir allar með 15 stig.  

Í Borgarnesi fór fram æsispennandi viðureign þar sem ungmennalið Hauka hafði betur gegn botnliði Skallagríms, 74–72. Inga Lea Ingadóttir átti stórleik fyrir Hauka með tröllatvennu; 30 stig og 21 frákast. Embla Kristínardóttir leiddi Skallagrím með 22 stig, 8 fráköst, 6 stoðsendingar og 7 stolna bolta.  

Í Breiðholti sóttu Þórsarar frá Akureyri öruggan 84–65 sigur gegn ÍR eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum í öðrum leikhluta (15–30). Ksenija Kuzmanovic skoraði 25 stig fyrir Þór og Emma Karólína Snæbjarnardóttir skilaði 23 stigum og 10 fráköstum. Hjá ÍR dró Janiya Foskey vagninn með 29 stig og 12 fráköst.  

Fjögur efstu liðin – Selfoss, Þór Þorlákshöfn, Þór Akureyri og Keflavík b – eru nú öll með 6 stig á toppi deildarinnar, en Keflvíkingar eru eina liðið með fullt hús eftir þrjá leiki.  

Úrslit kvöldsins í 1. deild kvenna:

 Keflavík b – Breiðablik 82–78 (12–16, 15–18, 29–22, 26–22)  

 Skallagrímur – Haukar u 72–74 (24–16, 9–15, 23–25, 16–18)  

 ÍR – Þór Akureyri 65–84 (20–24, 15–30, 12–21, 18–9)

Fréttir
- Auglýsing -