HomeFréttirJóla-Iðnaðartroð : var kominn með íbúð í Zagreb, Montpellier og Berlín

Jóla-Iðnaðartroð : var kominn með íbúð í Zagreb, Montpellier og Berlín

 Jólaútgáfa Iðnaðartroðs er kominn i loftið og vilja liðsmenn Iðnaðartroðs nota tækifærið og óska landsmönnum gleðilegra jóla.  Jólaþátturinn er undirlagður af umfjöllun um Íslenskan körfubolta og Domino’s deildina en gestir þáttarins þekkja ágætlega til í boltans hérna heima.  Það eru herramennirnir Bensó Harðarson, Grindvíkingur mikill, og Hörður Unnsteinsson, stuðningsmaður Skallagríms.  Um leið og við vonum að þið njótið jólanna til hins ýtrasta þá vonum við líka að þið finnið tíma til að klára þáttinn en hann er í lengri kantinum í þetta skiptið.  
 
Sem fyrr hvetjum við alla til þess að taka þátt í umræðunni á twitter undir kassamerkinu #iðnaðartroð 
  
 
Fréttir
- Auglýsing -