Aga og úrskurðarnefnd KKÍ hefur komist að niðurstöðu eftir ákæru dómaranefndar og dæmir Ingunni Emblu Kristínardóttur í tveggja leikja bann fyrir að hafa sparkað í Gunnhildi Gunnarsdóttur í viðureign Keflavíkur og Snæfells í undanúrslitum Poweradebikarsins á laugardaginn var.
Ingunn mun því missa af viðureignum Keflavíkur gegn Val og Grindavík í 19. og 20. umferð Dominosdeildar kvenna.




