spot_img
HomeFréttirIngibjörg Yrsa íþróttakona Grindavíkur 2011

Ingibjörg Yrsa íþróttakona Grindavíkur 2011

Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir var valin íþróttakona Grindavíkur 2011 á gamlársdag en hún leikur með kvennaliðum Grindavíkur í knattspyrnu og körfubolta. Við sama tilefni var Óskar Pétursson kjörinn íþróttamaður Grindavíkur en hann leikur knattspyrnu fyrir Grindvíkinga. Það voru UMFG og afrekssjóður Grindavíkur sem stóðu að kjörinu.
Í umsögn um Ingibjörgu Yrsu má finna eftirfarandi:
 
Köruknattleiksumsögn:
 
Yrsa kom sem stormsveipur inn í meistaraflokkinn í fyrra. Krafturinn í henni var ótrúlegur. Hún heillaði alla. Ekki var hún feimin við að taka á sér reyndari og eldri leikmönnum andstæðinganna. Engin virðing borin fyrir þeim. Á lokahófinu s.l vor var hún kosin efnilegasti leikmaðurinn. Það átti hún skilið. Hérna fer mikill íþróttamaður sem spilaði með meistaraflokk kvenna í knattspyrnu við góðan orðstír á liðnu sumri. Þetta er kannski einkenni á Grindvíkingum, spila á fullu á veturna körfu og fara síðan í knattspyrnu á sumrin. Yrsa er í úrtaki U-18 kvenna hjá KKÍ, en það lið fer á Norðurlandamót í Solan næsta vor. Hún verður í Solna, það er klárt. Núna í vetur er hún reyslunni ríkari og tekur á sig meiri ábyrgð. Það er enginn vafi að að Yrsa á flotta framtíð í íþróttum. Er það von okkar að hún spili áfram undir merkjum Grindavíkur
um ókomin ár
 
Knattspyrnuumsögn:
 
Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir er 17 ára efnileg knattspyrnukona. Hún spilaði 17 leiki fyrir hönd Grindavíkur í efstu deild síðasta sumar og var eins og klettur í vörninni. Yrsa er mjög snöggur leikmaður og eru ekki margar sem stinga hana af. Hún er ótrúlega prúður leikmaður á vellinum þótt baráttan sé svo sannarlega til staðar og er hún ávallt félaginu til sóma. Yrsa fór til Sviss á árinu með U-17 ára landsliðinu að spila í undankeppni EM. Auk þess að hafa tekið þátt í úrtaksæfingum fyrir U-19 ára landsliðið á árinu.
 
Nánar á www.umfg.is
Mynd/ Ingibjörg og Óskar, Íþróttamenn Grindavíkur 2011   
Fréttir
- Auglýsing -