HomeFréttirIngi Þór: Þetta er skandall

Ingi Þór: Þetta er skandall

Ingi Þór Steinþórsson var langt frá því að vera ánægður með úrslit kvöldsins þegar deildarmeistarar Snæfells steinlágu gegn Val og þá staðreynd að leikurinn skyldi fara fram þrátt fyrir beiðni um frestun vegna þess hve stutt var á milli leikja.
 

Fyrifram hefði maður ekki ímyndað sér að Snæfell kæmi hingað í kvöld og tapaði með 20 stigum í kvöld, hvað fór úrskeiðis? 

“Fyrirfram hefði maður heldur ekki haldið að í úrslitakeppninni þyrftu fjórir fyrstu leikirnir að fara fram á sjö dögum.  Við vorum bara gjörsamlega bensínlausar í dag, við missum tvær í álagsmeiðsli og Valur missir eina í álagsmeiðsli.  Ég vona að mótanefndin sé ánægð með sín störf að hafa ekki tekið til skoðunnar að breyta fjórða leiknum í meiri frest. Þetta er ekki kvennakörfunni í hag. Þetta er bara skandall”.   


Var það eitthvað sem þið báðuð um?

“Já, við báðum um það, En Valsmenn vildu það ekki og þær réðu því.  En því miður, þetta var aldrei leikur hérna.  Við missum því miður Hildi Björgu í álagsmeiðsli og Hildi Sigurðs líka og Guðbjörg Sverris því miður, það er ljótt að sjá þetta.  Valur var bara miklu betri í dag og kraftmeiri, þær áttu sigurinn skilið allan tíman”.  


Hefur þessi leikur einhver áhrif á andlegu hliðina hjá Snæfell?

“Nei, við erum að fara að vinna fimmta leikinn, ef við fáum meira en 24 tíma á milli leikja þá náum við að hlaða batteríin og sleikja sárin”.  

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -